Nokia N73 Music Edition - Viðbótaröryggisupplýsingar

background image

Viðbótaröryggisupplýsingar

130

Viðbótaröryggisupplýsingar

Lítil börn

Í tækinu og aukahlutum þess geta verið litlir hlutir.
Þá skal geyma þar sem lítil börn ná ekki til.

Vinnuumhverfi

Hafa ber í huga að farið sé að öllum sérstökum reglugerðum sem
gilda á hverju svæði og að slökkva alltaf á tækinu þar sem notkun
þess er bönnuð, eða þar sem hún kann að valda truflun eða
hættu. Tækið notist aðeins í hefðbundinni stöðu. Þetta tæki
uppfyllir skilyrði um leyfileg mörk útvarpsbylgna (RF) við notkun
annaðhvort í hefðbundinni stöðu við eyrað eða þegar það er haft
að minnsta kosti 2,2 sentímetra (7/8 tommur) frá líkamanum.
Ef taska, beltisklemma eða hald er notað þegar tækið er borið
á réttan hátt á líkamanum við notkun ætti slíkur búnaður ekki
að innihalda málm og halda ætti tækinu að minnsta kosti í þeirri
fjarlægð frá líkamanum sem nefnd var hér á undan.

Til að hægt sé að senda gagnaskrár eða skilaboð þarf þetta
tæki góða tengingu við símkerfið. Í sumum tilvikum getur
sending gagna eða boða tafist þar til slík tenging er tiltæk.
Tryggja skal að ofangreindum fjarlægðarfyrirmælum sé fylgt
þar til sendingu er lokið.

Hlutar tækisins eru segulmagnaðir. Málmefni gætu dregist
að tækinu. Ekki má geyma kreditkort eða aðra segulmagnaða
hluti með geymsluminni nálægt tækinu því upplýsingar
sem þar eru geymdar gætu þurrkast út.

Lækningatæki

Notkun búnaðar sem sendir frá sér útvarpsbylgjur, þar með
talin notkun þráðlausra síma, kann að trufla virkni
lækningatækja sem ekki eru nægilega vel varin. Hafa skal
samband við lækni eða framleiðanda lækningatækisins til
þess að komast að því hvort það sé nægilega vel varið fyrir
utanaðkomandi útvarpsbylgjum eða til að afla nánari
upplýsinga. Slökkva skal á tækinu í námunda við
heilsugæslustöðvar ef auglýstar reglur þess efnis kveða á um
að það sé gert. Sjúkrastofnanir eða heilsugæslustöðvar kunna
að nota búnað sem getur verið næmur fyrir utanaðkomandi
útvarpsbylgjum.

Gangráðar

Framleiðendur gangráða mæla með því að

15,3 sm (6 tommu) lágmarksbil sé haft á milli þráðlauss
síma og gangráðs til þess að komist sé hjá hugsanlegri truflun
í gangráðinum. Þessi tilmæli eru í samræmi við sjálfstæða
rannsókn og tilmæli frá Wireless Technology Research.
Þeir sem nota gangráð ættu að gera eftirfarandi:

alltaf að halda tækinu í meira en 15,3 sm (6 tommu)
fjarlægð frá gangráðinum;

ganga ekki með tækið í brjóstvasa;

hafa tækið við eyrað sem er fjær gangráðinum til að draga
úr líkum á truflunum.

Ef grunur leikur á að tækið trufli gangráðinn skal slökkva
á því og færa það í burtu.

background image

Viðbótaröryggisupplýsingar

131

Heyrnartæki

Tiltekin stafræn þráðlaus tæki geta truflað sum

heyrnartæki. Ef truflun verður skal leita til þjónustuaðila.

Ökutæki

Útvarpsbylgjur kunna að hafa áhrif á rafeindakerfi í vélknúnum
ökutækjum, séu þau ekki rétt upp sett eða ekki nægilega varin,
svo sem rafeindastýrða eldsneytisgjöf, rafeindastýrð hemlakerfi
(með læsivörn), rafeindastýrð hraðakerfi og loftpúðakerfi.
Nánari upplýsingar má fá hjá framleiðanda bílsins eða
búnaðarins sem bætt hefur verið við eða fulltrúa hans.

Aðeins á að fela fagmönnum að gera við tækið eða setja tækið
upp í ökutæki. Gölluð uppsetning eða viðgerð kann að valda
hættu og ógilda hvers kyns ábyrgð sem kann að vera á tækinu.
Ganga skal reglulega úr skugga um að allur þráðlaus
tækjabúnaður í ökutækinu sé rétt uppsettur og vinni rétt.
Ekki má geyma eða flytja eldfima vökva, lofttegundir eða
sprengifim efni í sama rými og tækið, hluta úr því eða
aukahluti með því. Ef ökutæki er búið loftpúða skal hafa
hugfast að loftpúðar blásast út af miklum krafti. Ekki má setja
hluti, þar með talinn uppsettan eða færanlegan þráðlausan
búnað, á svæðið yfir loftpúðanum eða á útþenslusvið
loftpúðans. Ef þráðlaus búnaður í bíl er illa settur upp
og loftpúðinn þenst út getur slíkt orsakað alvarleg meiðsl.

Notkun tækisins meðan á flugi stendur er bönnuð. Slökkva
skal á tækinu áður en gengið er um borð í flugvél. Notkun
þráðlausra fjarskiptatækja í flugvél getur skapað hættu við stjórn
flugvélarinnar, rofið þráðlaust símasamband og verið ólöglegt.

Sprengifimt umhverfi

Slökkva skal á tækinu á svæðum þar sem hætta er
á sprengingum og fara að öllum tilmælum sem sjást
á skiltum og leiðbeiningum. Sprengifimt andrúmsloft telst
vera á svæðum þar sem yfirleitt er beðið um að drepið sé á vél
bifreiðar. Neistaflug á slíkum svæðum getur valdið sprengingu
eða eldi og haft í för með sér slys og jafnvel dauðsföll.
Slökkva skal á símanum á eldsneytisstöðvum, svo sem við
eldsneytisdælur á bensínstöðvum. Virða skal takmarkanir
á notkun útvarpsbúnaðar í eldsneytisgeymslum, svæðum þar
sem geymsla og dreifing eldsneytis fer fram, efnaverksmiðjum
eða þar sem verið er að sprengja. Svæði þar sem sprengihætta
er mikil eru oftast auðkennd en þó ekki alltaf. Þar á meðal eru
svæði undir þilfari á bátum; svæði þar sem sterk efni eru
geymd eða búin til flutnings; ökutæki sem nýta fljótandi
svartolíugas (própan eða bútan) og svæði þar sem í lofti
eru efni eða agnir, til dæmis korn, ryk eða málmduft.

Neyðarhringingar

Mikilvægt: Þráðlausir símar, þar á meðal þetta

tæki, nota útvarpsmerki, þráðlaus kerfi, kapalkerfi og
notendaforritaðar aðgerðir. Því er ekki hægt að tryggja
tengingar við hvaða skilyrði sem er. Því skyldi aldrei treysta
eingöngu á þráðlaust tæki ef um er að ræða bráðnauðsynleg
fjarskipti, t.d. í bráðatilvikum.

background image

Viðbótaröryggisupplýsingar

132

Neyðarsímtal:

1

Ef slökkt er á tækinu skal kveikja á því. Athuga skal hvort
nægilegur sendistyrkur sé fyrir hendi.
Í tilteknum símkerfum kann að vera farið fram á að gilt
SIM-kort sé rétt sett í tækið.

2

Ýttu eins oft á endatakkann til að hreinsa skjáinn og gera
tækið reiðubúið fyrir símtöl.

3

Opinbera neyðarnúmerið fyrir viðkomandi svæði er valið.
Neyðarnúmer eru breytileg eftir stöðum.

4

Styddu á hringitakkann.

Ef ákveðnar aðgerðir eru í notkun þarf ef til vill að gera þær
óvirkar áður en neyðarsímtal er mögulegt. Ef ótengda sniðið
er virkt kann að vera þörf á að skipta um snið til að virkja
símaaðgerðina áður en hægt er að hringja neyðarsímtal.
Nánari upplýsingar má fá í þessari handbók eða hjá
þjónustuveitunni.

Í neyðarsímtali þarf að gefa upp allar nauðsynlegar
upplýsingar eins nákvæmlega og kostur er. Þráðlausa
tækið getur verið eina samskiptatækið á slysstað. Ekki
má slíta símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.

Upplýsingar um vottun (SAR)

Þetta þráðlausa tæki samræmist viðmiðunarreglum
um áhrif af útvarpsbylgjum
.

Þráðlausa tækið er útvarpssendir og móttökutæki.
Það er hannað með tilliti til leyfilegra marka um áhrif af
útvarpsbylgjum sem alþjóðlegar viðmiðunarreglur mæla
með. Þessar viðmiðunarreglur voru þróaðar af óháðu

vísindastofnuninni ICNIRP og innihalda öryggismörk sem
ætlað er að tryggja öryggi allra, óháð aldri og heilsufari.

Í viðmiðunarreglum um útvarpsbylgjur þráðlausra tækja
er notuð mælieiningin SAR (Specific Absorption Rate).
Efri mörk SAR, samkvæmt viðmiðunarreglum ICNIRP, eru
2,0 vött/kílógramm (W/kg) að meðaltali á hver 10 grömm
af líkamsvef. Mælingar á SAR eru gerðar í hefðbundnum
notkunarstöðum þegar tækið sendir af mesta leyfða styrk
á öllum mældum tíðnisviðum. Raunverulegur SAR-styrkur
tækis í notkun getur verið lægri en hámarksgildið, þar sem
tækið er hannað til að nota aðeins þann styrk sem þarf til að
ná sambandi við símkerfið. Fjöldi þátta hafa áhrif á styrkinn,
t.d. hversu langt notandinn er frá grunnstöð. Samkvæmt
viðmiðunarreglum ICNIRP er hæsta SAR-gildi fyrir notkun

Notkun aukabúnaðar getur valdið því að SAR-gildið sé annað.
SAR-gildi kunna að vera breytileg milli landa sökum mismunandi
upplýsingaskyldu, krafna og tíðnisviðs. Viðbótarupplýsingar
um SAR má finna í upplýsingum um vörur á www.nokia.com

tækisins við eyra 1,16 W/kg.

background image

133