 
Stjórnun rafrænna réttinda
Rétthafar efnis geta notað mismunandi aðferðir við 
að stjórna rafrænum réttindum (DRM) til að vernda 
hugverkaréttindi sín, þar með talið höfundarétt. Þetta tæki 
notar mismunandi gerðir stafrænnar tækni til að opna 
stafrænt varið efni. Með þessu tæki er hægt að fá aðgang 
að efni sem verndað er með OMA 1.0 og OMA 2.0. 
Ef tiltekinn stafrænn hugbúnaður nær ekki að verja efni 
kunna efniseigendur að biðja um að geta slíks hugbúnaðar 
til að opna nýtt efni sem er varið með stafrænum 
réttindum sé endurvakin. Slíkt kann einnig að hindra 
endurnýjun þess stafræns varins efnis sem er þegar 
í tækinu. Endurvakning slíks hugbúnaðar hefur ekki 
áhrif á notkun efnis sem er verndað með öðrum gerðum 
stafrænna réttinda eða notkun efnis sem ekki er verndað 
með stafrænum réttindum.
Efni sem er varið með stafrænum réttindum (DRM) fylgir 
opnunarlykill sem tilgreinir hvernig hægt er að nota efnið.
Ef tækið er með OMA DRM varið efni skal nota 
öryggisafritunaraðgerðina í Nokia PC Suite til að 
taka öryggisafrit af bæði opnunarlyklunum og efninu. 
Ef notaðar eru aðrar flutningsaðferðir er ekki víst að 
opnunarlyklarnir, sem þarf að endursetja ásamt OMA 
DRM-vörðu efni eftir að minni tækisins er forsniðið, 
verði fluttir með efninu. Einnig gæti þurft að endursetja 
opnunarlyklana ef skrár í tækinu skemmast.
Til að skoða opnunarlykla stafrænna réttinda sem 
eru vistaðir í tækinu skaltu ýta á 
, velja
Verkfæri
>
Opn.lyklar
og úr eftirfarandi:
Gildir lyklar
—Til að skoða lykla sem eru tengdir einni
eða fleiri skrám og lykla sem ekki hafa enn tekið gildi.
Ógildir lyklar
—Til að skoða lykla sem ekki eru gildir, þar
sem tíminn er runninn út eða þær vörðu skrár sem ekki 
eru tengdar neinum opnunarlyklum.
Lyklar án notk.
—Til að skoða lykla sem ekki tengjast
neinum skrám í tækinu.
Til að kaupa fleiri skipti eða framlengja notkunartíma 
skaltu velja ógildan opnunarlykil og 
Valkostir
>
Sækja
opnunarlykil
. Ekki er hægt að uppfæra opnunarlykla ef
slökkt er á móttöku vefþjónustuboða. Sjá „Vefþjónustuboð” 
á bls. 63.
Nákvæmar upplýsingar um skrá, svo sem gildistíma hennar 
og það hvort hægt sé að senda hana, fást með því að velja 
opnunarlykil og ýta á 
.