 
Uppsetning forrita og hugbúnaðar
táknar .sis forrit,
Java-forrit,
að forritið hafi
ekki verið sett upp að fullu og
að forritið sé uppsett
á minniskortinu.
Mikilvægt: Aðeins skal setja upp og nota forrit
og annan hugbúnað frá traustum aðilum, t.d. forrit með 
Symbian Signed eða forrit sem hafa verið prófuð með 
Java Verified
TM
.
Fyrir uppsetningu er hægt að gera eftirfarandi:
• Til að skoða gerð forritsins, útgáfunúmer og seljanda
eða framleiðanda forritsins skaltu velja
Valkostir
>
Skoða frekari uppl.
.
• Til að birta upplýsingar um öryggisvottorð
forritsins skaltu velja
Valkostir
>
Skoða vottorð
.
Sjá „Vottorðastjórnun” á bls. 119.
• Ef þú setur upp skrá sem inniheldur uppfærslu eða
endurbætur á forriti sem þegar er uppsett geturðu 
aðeins endurheimt upphaflega forritið ef annaðhvort 
upphaflega uppsetningarskráin er fyrir hendi eða 
öryggisafrit af öllum hugbúnaðarpakkanum sem var 
fjarlægður. Til að endurheimta upphaflega forritið 
skaltu fyrst fjarlægja forritið og setja það svo upp 
aftur með því að nota upphaflegu uppsetningarskrána 
eða öryggisafritið.
• Nauðsynlegt er að hafa .jar-skrá til að setja upp Java-
forrit. Ef tækið inniheldur ekki skrána getur það spurt 
hvort hlaða eigi henni niður. Ef enginn aðgangsstaður 
er tilgreindur fyrir forritið biður tækið þig um að velja 
aðgangsstað. Þegar þú hleður niður .jar-skránni 
geturðu þurft að slá inn notandanafn og lykilorð til 
að fá aðgang að miðlaranum. Notandanafn og lykilorð 
fæst hjá söluaðila eða framleiðanda forritsins.
1
Til að staðsetja uppsetningarskrá skaltu ýta á
og velja
Verkfæri
>
Stj. forrita
. Þú getur einnig leitað
í minni tækisins eða á samhæfu minniskortinu (ef það 
er í tækinu) í 
Skráastjórn
, eða opnað tölvupóst
í
Skilaboð
>
Innhólf
sem inniheldur
uppsetningarskrána.
2
Í
Stjórn. forrita
skaltu velja
Valkostir
>
Setja upp
.
Í öðrum forritum skaltu fletta að uppsetningarskránni 
og ýta á 
til að hefja uppsetninguna.
Meðan á uppsetningu stendur birtir tækið upplýsingar 
um stöðu hennar. Ef þú setur upp forrit án stafrænnar 
undirskriftar eða vottorðs birtir tækið viðvörun. Aðeins 
skal halda áfram að setja upp forritið ef þú ert viss um 
uppruna þess og innihald.
Til að ræsa uppsett forrit skaltu staðsetja það í valmyndinni 
og ýta á 
.
 
Verkfæri
111
Til að koma á tengingu við símkerfi og skoða 
viðbótarupplýsingar um forrit skaltu velja 
Valkostir
>
Opna vefsíðu
, ef sá valkostur er til staðar.
Til að sjá hvaða hugbúnaðarpakkar hafa verið settir 
upp eða fjarlægðir og hvenær það var gert skaltu 
velja
Valkostir
>
Skoða notk.skrá
.
Mikilvægt: Tækið styður aðeins eitt vírusvarnarforrit
í einu. Notkun fleiri en eins vírusvarnarforrits getur haft 
áhrif á afkastagetu og virkni tækisins, eða valdið því að það 
virki ekki.
Uppsetningarskrár (.sis) forritanna sem eru vistuð í minni 
tækisins verða áfram í minninu eftir að forritið hefur verið 
sett upp á samhæfu miniSD-korti. Uppsetningarskrár sem 
eru vistaðar minni tækisins taka mikið pláss og geta 
hindrað að hægt sé að vista ný forrit, skilaboð eða 
aðrar skrár. Til að ekki komi til þess skaltu taka afrit af 
uppsetningarskránum á samhæfa tölvu með því að nota 
Nokia PC Suite og fjarlægja síðan uppsetningarskrána 
úr minni tækisins með því að nota 
Skráastjórn
(sjá „Skráastjóri” á bls. 15).