 
Hleðsla og afhleðsla
Tækið gengur fyrir rafhlöðu sem hægt er að endurhlaða. Hægt 
er að hlaða og afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð sinnum en að 
því kemur að hún gengur úr sér. Þegar tal- og biðtími er orðinn 
mun styttri en eðlilegt er skal skipta um rafhlöðu. Aðeins skal 
nota rafhlöður sem samþykktar eru af Nokia og aðeins skal 
endurhlaða rafhlöðu með hleðslutækjum sem Nokia hefur 
samþykkt til notkunar með þessu tæki.
Ef verið er að nota vararafhlöðu í fyrsta skipti, eða ef rafhlaðan 
hefur ekki verið notuð í langan tíma, kann að vera nauðsynlegt 
að tengja hleðslutækið og aftengja það síðan og tengja aftur 
til að hefja hleðsluna.
Taka skal hleðslutækið úr sambandi við rafmagnsinnstungu 
og tækið þegar það er ekki í notkun. Ekki má hafa fullhlaðna 
rafhlöðnu í sambandi við hleðslutæki þar sem ofhleðsla getur 
stytt líftíma hennar. Fullhlaðin rafhlaða tapar hleðslunni smátt 
og smátt ef hún er ekki í notkun.
Ef rafhlaðan er alveg tóm geta liðið nokkrar mínútur þar til 
hleðsluvísirinn birtist á skjánum eða þar til hægt er að hringja.
Aðeins skal nota rafhlöðuna til þess sem hún er ætluð. 
Aldrei skal nota skemmt hleðslutæki eða rafhlöðu.
Gæta skal þess að valda ekki skammhlaupi í rafhlöðunni. 
Skammhlaup getur orðið fyrir slysni þegar málmhlutur, svo 
sem mynt, bréfaklemma eða penni veldur beinni tengingu milli 
+ og - skautanna á rafhlöðunni. (Þau líta út eins og 
málmrendur á rafhlöðunni.) Til dæmis getur þetta gerst þegar 
vararafhlaða er höfð í vasa eða tösku. Skammhlaup milli 
skautanna getur valdið skemmdum á rafhlöðunni eða hlutnum 
sem veldur tengingunni.
Ef rafhlaðan er skilin eftir í miklum hitum eða kuldum, 
til dæmis í lokuðum bíl að sumar- eða vetrarlagi, dregur það 
úr afkastagetu hennar og endingu. Æskilegast er að rafhlaðan 
sé alltaf höfð í hita á bilinu frá 15°C að 25°C (frá 59°F að 77°F). 
Tæki með of heitri eða of kaldri rafhlöðu getur orðið óvirkt um 
tíma, þó svo að rafhlaðan sé fullhlaðin. Einkum hefur mikið 
frost takmarkandi áhrif á rafhlöður.
Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem þær geta sprungið. 
Rafhlöður geta einnig sprungið ef þær skemmast. Farga skal 
rafhlöðum í samræmi við staðbundin lög og reglugerðir. 
Skila skal þeim í endurvinnslu þegar mögulegt er. Ekki skal 
fleygja þeim með heimilisúrgangi.
Ekki skal taka sundur eða tæta rafhlöður. Ef rafhlaða lekur má 
vökvi hennar ekki komast í snertingu við húð eða augu. Ef slíkt 
kemur fyrir skal skola húð eða augu umsvifalaust með vatni, 
eða leita til læknis.
 
Upplýsingar um rafhlöðu
127