Nokia N73 Music Edition - Umhirða og viðhald

background image

Umhirða og viðhald

129

Umhirða og viðhald

Í tækinu fer saman frábær hönnun og flókin tækni sem fara
þarf gætilega með. Eftirfarandi leiðbeiningar hjálpa til við
að halda tækinu í ábyrgð.

Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki og hvers kyns vökvar
geta innihaldið steinefni sem tæra rafrásirnar. Ef tækið
blotnar skal fjarlægja rafhlöðuna og leyfa því að þorna
alveg áður en rafhlaða er sett í aftur.

Ekki skal nota tækið á rykugum og óhreinum stöðum né
geyma það þar. Færanlegu hlutirnir og rafrænir hlutar
þess geta skemmst.

Ekki skal geyma tækið á heitum stað. Hátt hitastig getur
dregið úr endingu rafeindatækja, skemmt rafhlöður
og undið eða brætt sum plastefni.

Ekki skal geyma tækið á köldum stað. Þegar tækið hitnar
upp að eðlilegu hitastigi getur raki myndast innan
í því og hann getur skemmt rafrásaspjöld.

Ekki skal reyna að opna símann öðruvísi en tilgreint
er í þessari handbók.

Tækinu skal ekki henda, ekki skal banka í það eða hrista
það. Óvarleg meðferð getur skemmt innri rafrásarspjöld
og fíngerðan búnað.

Ekki skal nota sterk efni, leysiefni til hreingerninga
eða sterk hreinsiefni til þess að þrífa tækið.

Ekki skal mála tækið. Málningin getur fest hreyfanlega
hluti tækisins og komið í veg fyrir að þeir vinni rétt.

Nota skal mjúkan, hreinan, þurran klút til að hreinsa
linsur (svo sem myndavélar-, fjarlægðarnema- og
ljósnemalinsur).

Aðeins skal nota loftnetið sem fylgir með símanum
eða samþykkt varaloftnet. Ósamþykkt loftnet, breytingar
á þeim eða viðbætur, gætu skemmt tækið og kunna að
brjóta í bága við ákvæði laga og reglugerða um senditæki.

Nota skal hleðslutæki innandyra.

Alltaf skal taka öryggisafrit af gögnum sem ætlunin
er að halda (svo sem tengiliðum og dagbókaratriðum)
áður en tækið er sent til þjónustuaðila.

Hægt er að endurstilla tækið af og til og tryggja þannig
hámarksafköst með því að slökkva á tækinu og fjarlægja
rafhlöðu þess.

Þessar ábendingar eiga jafnt við um tækið, rafhlöðuna,
hleðslutækið eða aðra aukahluti. Ef tæki vinnur ekki rétt
skal fara með það til næsta viðurkennda þjónustuaðila
til lagfæringar.