 
SIM-skrá og önnur SIM-þjónusta.
Upplýsingar um framboð og notkun SIM-korta 
má fá hjá seljanda SIM-kortsins. Þetta getur verið 
þjónustuveitan eða annar söluaðili.
Ýttu á
og veldu
Tengiliðir
>
Valkostir
>
SIM-tengiliðir
>
SIM-skrá
til að sjá hvaða nöfn og númer
eru vistuð á SIM-kortinu. Í SIM-skránni er hægt að bæta 
númerum við tengiliði, breyta þeim, afrita og hringja í þau.
Til að skoða listann yfir númer í föstu númeravali skaltu 
velja 
Valkostir
>
SIM-tengiliðir
>
Í föstu númeravali
.
Aðeins er hægt að velja þessa stillingu ef SIM-kortið 
styður hana.
 
Tengiliðir (Símaskrá)
75
Til að takmarka símtöl úr tækinu við ákveðin símanúmer 
skaltu velja 
Valkostir
>
Virkja fast nr.val
. Nauðsynlegt er
að hafa PIN2-númerið til að gera fast númeraval virkt eða 
óvirkt eða til að breyta tengiliðum með föstu númeravali. 
Hafðu samband við þjónustuveituna ef þig vantar númerið. 
Nýjum númerum er bætt við listann með því að velja 
Valkostir
>
Nýr SIM-tengiliður
. Nauðsynlegt er að hafa
PIN2-númerið til að geta valið þennan valkost.
Þegar
Fast númeraval
er notað er ekki hægt að koma
á pakkagagnatengingu nema til að senda textaskilaboð. 
Í því tilviki þarf númer skilaboðamiðstöðvarinnar og númer 
viðtakandans að vera á lista yfir leyfð númer.
Þegar fast númeraval er virkt kann að vera hægt að hringja 
í opinbera neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.