 
Hugbúnaðaruppfærslur
Nokia framleiðir stundum uppfærð forrit sem geta 
innihaldið nýjar aðgerðir eða virkað betur og afkastað 
meiru. Það kann að vera hægt að biðja um þessar 
uppfærslur með Nokia Software Updater forritinu. Til að 
uppfæra hugbúnað tækisins þarf Nokia Software Updater 
forrit og samhæfa tölvu með Microsoft Windows 2000 eða 
XP stýrikerfi, breiðbands-internetaðgang og samhæfa 
gagnasnúru til að tengja tækið við tölvuna.
Nánari upplýsingar um Nokia Software Updater forritið 
og hvernig á að hlaða því niður er að finna 
á www.nokia.com/softwareupdate eða vefsetri Nokia 
í eigin landi.
Ef símkerfið styður hugbúnaðaruppfærslur um 
nettengingu kann einnig að vera hægt að biðja 
um uppfærslur í tækinu. Sjá „Stjórnandi tækis”, 
„Hugbúnaðaruppfærslur” á bls. 98.