 
Gagnatengingar og aðgangsstaðir
Tækið styður pakkagagnatengingar (sérþjónusta), t.d. GPRS 
í GSM-símkerfi. Þegar tækið er notað í GSM- og 
UMTS-símkerfum er hægt að hafa margar gagnatengingar 
í gangi samtímis og aðgangsstaðir geta deilt 
gagnatengingu. Í UMTS-símkerfinu er ekki slökkt 
á gagnatengingu þegar símtal er í gangi.
Áður en gagnatengingu er komið á verður að velja 
aðgangsstað. Hægt er að tilgreina mismunandi gerðir 
aðgangsstaða, svo sem:
• MMS-aðgangsstað til að senda og taka við
margmiðlunarskilaboðum
• Aðgangsstað fyrir Vefforritið til að skoða WML- eða
XHTML-síður
• Internetaðgangsstað (IAP) til að senda og taka við
tölvupósti og tengjast við internetið
Upplýsingar um það hvaða gerð af aðgangsstað þarf 
að nota fyrir tiltekna þjónustu fást hjá þjónustuveitu. 
Þjónustuveitan gefur upplýsingar um pakkagagnaþjónustu 
og áskrift að henni.
 
Stillingar
116