 
Símkerfi
Tækið getur skipt sjálfkrafa á milli GSM- og UMTS- 
símkerfanna. GSM-símkerfið er táknað með 
í biðstöðu.
UMTS-símkerfið er táknað með
.
Símkerfi
(sést aðeins ef símafyrirtækið styður það)—Veldu
hvaða símkerfi er notað. Ef þú velur
Tvöfalt kerfi
skiptir
tækið sjálfkrafa á milli GSM- og UMTS-símkerfanna 
í samræmi við kerfisstillingar og reikisamninga á milli 
símafyrirtækjanna. Nánari upplýsingar fást hjá 
símafyrirtækinu.
Val á símafyrirtæki
—Veldu
Sjálfvirkt
til að stilla tækið
þannig að það leiti að og velji eitt af þeim símkerfum sem 
eru í boði, eða 
Handvirkt
til að velja símkerfið handvirkt af
lista yfir símkerfi. Ef tengingin rofnar við símkerfið sem var 
valið handvirkt gefur tækið frá sér hljóðmerki og biður um 
að símkerfi sé valið aftur. Símkerfið sem er valið verður 
að vera með reikisamning við símkerfið þitt, þ.e. fyrirtækið 
sem lét þig fá SIM-kortið sem er í tækinu.
Útskýring: Reikisamningur er samningur milli tveggja
eða fleiri farsímaþjónustuveitna um að leyfa notendum 
einnar veitunnar að nota þjónustu hinna.
Uppl. um endurvarpa
—Veldu
Virkar
til að láta tækið gefa
til kynna þegar það er notað á farsímakerfi sem byggir 
á örbylgjutækni (MCN) og til að kveikja á móttöku 
upplýsinga frá endurvarpa.
 
Stillingar
122