 
Vottorðastjórnun
Stafræn vottorð tryggja ekki öryggi heldur eru þau notuð 
til að staðfesta uppruna hugbúnaðar.
Á aðalskjá vottorðastjórnunar er hægt að opna lista yfir 
þau heimildavottorð sem eru vistuð í tækinu. Ýttu á 
til
að skoða lista yfir persónuleg vottorð, ef hann er til staðar.
Nota ætti stafræn vottorð ef tengjast á netbanka, öðru 
vefsvæði eða miðlara þar sem trúnaðarupplýsingar eru 
sendar. Einnig ætti að nota þau til að minnka hættuna 
á vírusum eða öðrum skaðlegum hugbúnaði og tryggja 
áreiðanleika hugbúnaðar sem hlaðið er niður af netinu 
og settur upp í tækinu.
Mikilvægt: Þó að notkun vottorða dragi verulega
úr þeirri áhættu sem fylgir fjartengingum og uppsetningu 
hugbúnaðar verður að nota þau rétt svo að aukið öryggi 
fáist. Tilvist vottorðs er engin vörn ein og sér. 
Vottorðastjórinn verður að vera með rétt, sannvottuð eða 
tryggileg vottorð svo að aukið öryggi fáist. Vottorð eru 
bundin tilteknum tíma. Ef textinn 
Vottorð útrunnið
eða
Vottorð ekki enn gilt
birtist þó svo að vottorðið ætti
að vera gilt skal athuga hvort rétt dag- og tímasetning 
er á tækinu.
Áður en vottorðsstillingum er breytt þarf að ganga úr 
skugga um að örugglega megi treysta eiganda þess og 
að það tilheyri í raun eigandanum sem tilgreindur er.
Upplýsingar um vottorð skoðaðar—áreiðanleiki 
kannaður
Aðeins er hægt að vera viss um rétt kenni miðlara þegar 
búið er að kanna undirskrift og gildistíma 
miðlaravottorðsins.
Látið er vita ef uppruni miðlarans er ekki staðfestur eða 
ef tækið inniheldur ekki er rétt öryggisvottorð.
 
Stillingar
120
Upplýsingar um vottorð eru skoðaðar með því að fletta 
að því og velja 
Valkostir
>
Upplýs. um vottorð
. Þegar
upplýsingar um vottorð eru opnaðar er gildi vottorðsins 
kannað og einhver af eftirfarandi athugasemdum 
getur birst:
•
Vottorði ekki treyst
—Þú hefur ekki valið vottorðið
fyrir nein forrit. Sjá „Trauststillingum breytt” á bls. 120.
•
Vottorð útrunnið
—Gildistími vottorðsins hefur
runnið út.
•
Vottorð ekki enn gilt
—Vottorðið hefur ekki enn
tekið gildi.
•
Vottorð skemmt
—Það er ekki hægt að nota vottorðið.
Hafðu samband við útgefanda vottorðsins.
Trauststillingum breytt
Áður en vottorðsstillingum er breytt þarf að ganga úr 
skugga um að örugglega megi treysta eiganda þess og 
að það tilheyri í raun eigandanum sem tilgreindur er.
Flettu að heimildavottorði og veldu
Valkostir
>
Stillingar
f. traust
. Listi birtist yfir forritin sem geta notað vottorðið.
Dæmi:
•
Symbian-uppsetning
:
Já
—Vottorðið getur sannreynt
uppruna nýs Symbian-stýrikerfisforrits.
•
Internet
:
Já
—Vottorðið getur sannreynt miðlara.
•
Uppsetning forrita
:
Já
—Vottorðið getur sannreynt
uppruna nýrra Java
TM
-forrita.
Veldu
Valkostir
>
Breyta still. f. traust
til að breyta gildinu.