Nokia N73 Music Edition - Sími og SIM

background image

Sími og SIM

Beðið um PIN-númer

—Þegar kveikt er á þessari stillingu

er beðið um númerið í hvert skipti sem kveikt er á tækinu.
Ekki er víst að öll SIM-kort leyfi að slökkt sé á beiðni um
PIN-númer. Sjá „Útskýringar á PIN-númerum og númerum
fyrir læsingu” á bls. 118.

PIN-númer

,

PIN2-númer

og

Númer fyrir læsingu

—Hægt

er að breyta læsingarnúmerinu, PIN-númerinu og PIN2-
númerinu. Þessi númer geta aðeins innihaldið tölur frá
0 to 9. Hafa skal samband við þjónustuveituna ef þessi
númer glatast. Sjá „Útskýringar á PIN-númerum og
númerum fyrir læsingu” á bls. 118.

Forðastu að nota aðgangsnúmer sem líkist
neyðarnúmerum, t.d. 112, til að komast hjá því að hringja
óvart í neyðarnúmer.

Sjálfv. læsingartími

—Þú getur valið tímann sem líður

þar til tækið læsist sjálfkrafa. Veldu

Enginn

til að slökkva

á þessari stillingu.

Tækið er opnað með því að slá inn læsingarnúmer.

Þegar tækið er læst getur samt verið hægt að hringja
í opinbera neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.

Ábending! Tækinu er læst handvirkt með því að ýta

á

. Þá opnast listi yfir skipanir. Veldu

Læsa síma

.

Læsa ef skipt um SIM

—Þú getur látið tækið biðja um

númerið fyrir læsingu þegar óþekkt SIM-kort er sett í það.
Tækið heldur þá saman lista yfir þau SIM-kort sem það
viðurkennir sem kort eigandans.

Lok. notendahópur

—Þú getur tilgreint hóp fólks sem

þú getur hringt í og sem getur hringt í þig (sérþjónusta).

Þegar símtöl eru takmörkuð við lokaða notendahópa kann
að vera hægt að hringja í opinbera neyðarnúmerið sem
er forritað í tækið.

Staðfesta SIM-þjón.

—Þú getur látið tækið birta

staðfestingarboð þegar þú notar SIM-kortsþjónustu
(sérþjónusta).

Útskýringar á PIN-númerum og númerum fyrir læsingu

Hafa skal samband við þjónustuveituna ef þessi
númer glatast.

PIN-númer—Þetta númer kemur í veg fyrir að SIM-kortið
sé notað í leyfisleysi. PIN-númerið (4 til 8 tölustafir) fylgir
yfirleitt með SIM-kortinu. Þegar PIN-númerið er slegið
rangt inn þrisvar sinnum er númerinu lokað og slá þarft
inn PUK-númerið til að opna það.

UPIN-númer—Númerið kann að fylgja með USIM-kortinu.
USIM-kortið er endurbætt gerð SIM-korts til að nota
í UMTS-farsímum.

background image

Stillingar

119

PIN2-númer—Númerið (4 til 8 tölustafir) fylgir sumum
SIM-kortum og er nauðsynlegt til að geta notað suma
valkosti tækisins.

Læsingarnúmer (einnig þekkt sem öryggisnúmer)—Hægt
er að nota þetta númer (5 tölustafir) til að læsa tækinu
og hindra þannig að það sé notað í leyfisleysi. Upphaflega
númerið er 12345. Breyttu læsingarnúmerinu til að koma
í veg fyrir óleyfilega notkun tækisins. Halda skal nýja
númerinu leyndu og á öruggum stað fjarri tækinu. Hafa
skal samband við þjónustuveituna ef einhver af þessum
númerum glatast.

PUK- og PUK2-númer—Þessi númer (8 tölustafir) eru
nauðsynleg til að breyta lokuðu PIN-númeri eða PIN2-
númeri. Ef númerin fylgja ekki með SIM-kortinu skaltu
hafa samband við símafyrirtækið sem lét þig fá SIM-kortið.

UPUK-númer—Þetta númer (8 tölustafir) er nauðsynlegt til
að breyta lokuðu UPIN-númeri. Ef númerið fylgir ekki með
USIM-kortinu skaltu hafa samband við símafyrirtækið sem
lét þig fá USIM-kortið.