 
Skilaboð
57
Skilaboð
Ýttu á
og veldu
Skilaboð
(sérþjónusta). Í
Skilaboð
er hægt að búa til, senda, taka við, skoða, breyta 
og skipuleggja textaskilaboð, margmiðlunarboð, 
tölvupóstskeyti og sérstök textaskilaboð sem innihalda 
gögn. Einnig er hægt að taka við vefþjónustuboðum, 
skilaboðum frá endurvarpa og senda þjónustuskipanir. 
Skilaboð og gögn sem tekið hefur verið við um Bluetooth 
eða innrauða tengingu eru vistuð í 
Innhólf
möppunni
í
Skilaboð
.
Skilaboð eru búin til með því að velja
Ný skilaboð
.
Aðeins tæki með samhæfar aðgerðir geta tekið á móti 
og birt margmiðlunarskilaboð. Útlit skilaboða getur verið 
breytilegt eftir móttökutækinu.
Skilaboð
inniheldur eftirfarandi möppur:
Innhólf
—Inniheldur móttekin skilaboð, fyrir utan
tölvupóstskeyti og skilaboð frá endurvarpa. Tölvupóstskeyti 
eru vistuð í 
Pósthólf
.
Mínar möppur
—Til að skipuleggja skilaboð í möppur.
Ábending! Hægt er að nota textana
í skjalasniðsmöppunni til að komast hjá 
því að endurskrifa skilaboð sem eru send oft.
Pósthólf
—Hér er hægt að tengjast við ytra pósthólf
til að sækja nýjan tölvupóst og skoða eldri tölvupóst 
án tengingar. Sjá „Tölvupóstur” á bls. 67.
Uppköst
—Inniheldur drög að skilaboðum sem
hafa ekki verið send.
Sendir hlutir
—Inniheldur síðustu 20 skilaboðin sem
voru send, fyrir utan þau sem hafa verið send um Bluetooth 
eða innrautt tengi. Upplýsingar um hvernig á að breyta 
fjölda vistaðra skilaboða er að finna í „Aðrar stillingar” 
á bls. 69.
Úthólf
—Inniheldur skilaboð sem bíða sendingar.
Dæmi: Skilaboð eru t.d. sett í úthólfið þegar tækið
er utan þjónustusvæðis. Einnig er hægt að biðja um 
að tölvupóstskeyti verði send næst þegar tengst er 
við ytra pósthólf.
Tilkynningar
—Hægt er að biðja símkerfið að senda
skilatilkynningar fyrir send texta- og margmiðlunarboð 
(sérþjónusta). Ekki er víst að hægt sé að fá skilatilkynningar 
fyrir margmiðlunarboð sem eru send á tölvupóstfang.
Ábending! Þegar þú opnar einhverja af sjálfgefnu
möppunum geturðu ýtt á
eða
til að skipta
á milli mappa.
 
Skilaboð
58
Til að slá inn og senda þjónustubeiðnir til þjónustuveitu 
(einnig þekktar sem USSD-skipanir), líkt og skipanir um 
að virkja sérþjónustu, skaltu velja 
Valkostir
>
Þjónustuskipun
á aðalvalmynd
Skilaboð
.
Með
Upplýs. frá endurvarpa
(sérþjónusta) getur þú fengið
skilaboð frá þjónustuveitunni um mismunandi efni, líkt 
og veður og umferð. Upplýsingar um hvaða efni eru í boði 
og efnisnúmer þeirra fást hjá þjónustuveitunni. Í aðalskjá 
Skilaboð
skaltu velja
Valkostir
>
Upplýs. frá endurvarpa
.
Í aðalskjánum sést staða efnis, númer þess, heiti og hvort 
það hefur verið merkt sem (
) til að fylgja því eftir.
Ekki er hægt að fá upplýsingar frá endurvarpa 
í UMTS-símkerfum. Pakkagagnatenging getur valdið 
því að upplýsingar frá endurvarpa berist ekki.