 
Raddstýrð hringing
Tækið styður raddskipanir. Raddskipanir velta ekki á rödd 
notandans þannig að ekki þarf að taka upp raddmerki áður 
en þær eru notaðar. Þess í stað býr tækið til raddmerki fyrir 
færslur í tengiliðum og ber það raddmerki sem notandinn 
segir saman við þær. Raddkennslin í tækinu laga sig að 
rödd aðalnotandans til að líklegra sé að tækið beri kennsl 
á raddskipunina.
Raddmerki fyrir tengilið er nafnið eða gælunafnið sem 
er vistað á tengiliðaspjaldinu. Til að hlusta á tilbúið 
raddmerki skaltu opna tengiliðaspjald og velja 
Valkostir
>
Spila raddmerki
.