 
Stillingar
Stillingar fyrir tengingar á milli einstaklinga
Tenging á milli einstaklinga er einnig þekkt undir heitinu 
SIP-tenging (Session Initiation Protocol). SIP-sniðstillingar 
þurfa að hafa verið valdar í tækinu áður en hægt er að nota 
Samn. hre.m.
. Uppsetning SIP-sniðs gerir þér kleift að
koma á rauntímasambandi við samhæft tæki. SIP-sniðið 
verður einnig að geta móttekið samnýtingu.
SIP-stillingarnar fást hjá þjónustuveitunni. Nauðsynlegt 
er að vista þær í tækinu. Þjónustuveitan gæti sent þér 
stillingarnar í ljósvakaboðum eða gefið þér upp 
nauðsynlegar stillingar.
Ef þú veist SIP-vistfang viðtakandans getur þú slegið 
það inn á tengiliðaspjald hans. Opnaðu 
Tengiliðir
í aðalvalmyndinni og síðan tengiliðaspjaldið (eða búðu til 
nýtt spjald ef ekkert spjald hefur verið búið til áður). Veldu 
Valkostir
>
Bæta við upplýsing.
>
SIP
eða
Samnýttur
skjár
(réttur valkostur veltur á símafyrirtækinu). Sláðu
inn SIP-vistfangið á forminu notandanafn@vistfang 
(hægt er að nota IP-tölu í stað vistfangs).
Ef þú veist ekki SIP-vistfang viðkomandi geturðu einnig 
notað vistað símanúmer hans, ásamt landsnúmerinu 
(t.d. +354) til að deila hreyfimynd. Ef símanúmer sem er 
vistað í 
Tengiliðir
inniheldur ekki landsnúmerið getur þú
slegið það inn ásamt landsnúmerinu þegar þú sendir boðið.
UMTS-tengistillingar
Settu upp UMTS-tenginguna þína á eftirfarandi hátt:
• Hafðu samband við þjónustuveituna þína til að gerast
áskrifandi að UMTS-þjónustunni.
• Gakktu úr skugga um að UMTS-
aðgangsstaðastillingarnar hafi verið rétt valdar. 
Frekari upplýsingar er að finna í „Samband” á bls. 115.