 
Allir samskiptaatburðir skoðaðir
Tákn í
Notkunarskrá
:
 Inn
 Út
 Samskipti sem mistókust
Til að skoða upplýsingar um 
öll símtöl, textaskilaboð eða 
gagnatengingar sem tækið 
hefur skrásett skaltu ýta á 
velja
Forrit
>
Notkunarskrá
og fletta til hægri til að opna 
almennu notkunarskrána. Hægt 
er að sjá nafn sendanda eða 
viðtakanda, símanúmer hans, 
heiti þjónustuveitu eða 
aðgangsstað fyrir hver 
samskipti. Hægt er að afmarka 
leit í skránni til að fá aðeins fram eina tegund samskipta 
og búa til ný tengiliðaspjöld út frá upplýsingum í skránni.
Ábending! Til að skoða lista yfir send skilaboð skaltu
ýta á
og velja
Skilaboð
>
Sendir hlutir
.
Undiratburðir, svo sem skilaboð sem voru send í fleiri 
en einum hluta eða pakkagagnatengingar, eru skráðir 
sem einn samskiptaatburður. Tenging við pósthólfið þitt, 
skilaboðastöð margmiðlunarboða eða vefsíður eru sýndar 
sem pakkagagnatengingar.
Til að bæta óþekktu símanúmeri úr
Notkunarskrá
við
tengiliðina skaltu velja
Valkostir
>
Bæta við Tengiliði
.
Til að sía skrána skaltu velja
Valkostir
>
Sía
og svo síu.
Til að eyða innihaldi notkunarskrárinnar, teljurum nýlegra 
símtala og skilatilkynningum skilaboða varanlega skaltu 
velja 
Valkostir
>
Hreinsa notkun.skrá
. Valið er staðfest
með því að velja
Já
.
Til að stilla á
Skráning varir
skaltu velja
Valkostir
>
Stillingar
>
Skráning varir
. Atburðirnir eru áfram í minni
tækisins í tiltekinn fjölda daga áður en þeim er eytt 
sjálfkrafa til að losa um minni. Ef þú velur 
Engin skráning
er öllu innihaldi notkunarskráarinnar, teljara nýlegra 
símtala og skilatilkynningum fyrir skilaboð eytt varanlega.
Til að sjá upplýsingar um samskiptaatburð skaltu velja 
hann í aðalnotkunarskránni og ýta á 
.
Ábending! Í upplýsingaskjánum er hægt að afrita
símanúmer yfir á klemmuspjaldið og líma það t.d. 
inn í skilaboð. Veldu 
Valkostir
>
Afrita númer
.
Teljari pakkagagna og tímamælir tenginga: Til að sjá 
hversu mikið gagnamagn, í kílóbætum, er flutt og hversu 
lengi pakkagagnatenging var virk skaltu velja einhvern 
atburð sem er gefinn til kynna með 
Pakka
og velja
Valkostir
>
Skoða frekari uppl.
.