Nokia N73 Music Edition - Nokkrar myndir teknar í röð

background image

Nokkrar myndir teknar í röð

Aðeins er hægt að velja myndaraðarstillinguna
í aðalmyndavélinni.

Til að stilla myndavélina þannig að hún taki a.m.k. sex
myndir í röð (ef nægilegt minni er til staðar) skaltu velja

Skipta yfir í myndaröð

á tækjastikunni.

Ýttu á myndatökutakkann til að taka sex myndir. Haltu
myndatökutakkanum niðri til að taka fleiri en sex myndir.
Slepptu myndatökutakkanum að myndatöku lokinni. Hægt
er að taka allt að 100 myndir, ef tiltækt minni leyfir.

Eftir að myndirnar hafa verið teknar eru þær birtar
í töflu á skjánum. Mynd er skoðuð með því að ýta á

til að opna hana.

Einnig er hægt að taka nokkrar myndir í röð með sjálfvirkri
myndatöku. Hámarksfjöldi mynda með sjálfvirkri
myndatöku er sex myndir.

Ýttu á myndatökutakkann til að fara aftur í myndgluggann
með myndaröðinni.