 
Uppsetning—Stilling lita og lýsingar
Til að gera myndavélinni kleift að greina betur liti og 
lýsingu eða til að bæta inn áhrifum í myndir eða 
hreyfimyndir skaltu nota skruntakkann til að fletta 
gegnum tækjastikuna og velja úr eftirfarandi valkostum:
Ljósgjafi
—Veldu ljósgjafa af listanum. Þetta gerir
myndavélinni kleift að endurskapa liti af meiri nákvæmni.
Leiðrétting við myndatöku
(aðeins fyrir kyrrmyndir)—
Stilltu á leiðréttingu við myndatöku.
Litáferð
—Veldu litáferðina af listanum.
Ljósnæmi
(aðeins fyrir kyrrmyndir)—Veldu ljósnæmi
myndavélarinnar. Því dimmara sem umhverfið er þeim 
mun meira ætti ljósnæmið að vera.
Skjárinn breytist eftir því hvaða stillingar eru valdar 
og sýnir hvernig lokaútkoma myndarinnar eða 
hreyfimyndarinnar verður.
Hvaða stillingar eru í boði veltur á því hvaða myndavél 
hefur verið valin.
Þegar stillingum aukamyndavélarinnar er breytt hefur það 
einnig áhrif á stillingar aðalmyndavélarinnar og öfugt. 
Þegar myndavélinni er lokað eru sjálfgefnar stillingar 
hennar valdar aftur.
Ef þú velur nýtt umhverfi kemur það í stað lita- og 
birtustillinganna. Sjá „Umhverfi” á bls. 23. Hægt er að 
breyta stillingunum ef þörf krefur eftir að umhverfi 
hefur verið valið.
 
Myndavél
23