 
Myndavél
18
Myndavél
Í Nokia N73 tækinu eru tvær myndavélar, ein með hárri 
upplausn aftan á tækinu (aðalmyndavélin) og önnur með 
minni upplausn framan á því (aukamyndavélin). Hægt 
er að nota báðar myndavélarnar til að taka kyrr- og 
hreyfimyndir. Með fremri myndavélinni eru teknar 
andlitsmyndir og landslagsmyndir með aðalmyndvélinni. 
Nokia N73 tækið styður allt að 2048x1536 punkta 
myndupplausn í aðalmyndavélinni. Myndupplausnin 
í þessum efnum getur virst önnur.
Kyrrmyndirnar og 
myndskeiðin vistast sjálfkrafa 
í möppunni 
Myndir & hr.m.
í
Gallerí
. Myndir eru teknar
á .jpeg-sniði. Hreyfimyndir eru 
teknar upp á .mp4-sniði eða 
3GPP-sniði með endingunni 
.3gp (
Samnýting
).
Sjá „Stillingar fyrir 
hreyfimyndir” á bls. 26.
Hægt er að senda myndir og hreyfimyndir 
í margmiðlunarboðum, sem viðhengi í tölvupósti eða 
um Bluetooth- tengingu. Einnig er hægt að hlaða þeim 
upp í samhæft netalbúm. Sjá „Samnýting” á bls. 35.