 
Úrræðaleit: Spurningar & Svör
Aðgangslyklar
Spurning: Hvað er lykilorðið mitt fyrir læsingar-, PIN-,
eða PUK-númerin?
Svar:
Sjálfgefna númerið er 12345. Hafðu samband 
við söluaðilann ef þú týnir eða gleymir 
læsingarnúmerinu.
Ef þú gleymir eða týnir PIN- eða PUK-númeri, eða 
ef þú hefur ekki fengið slíkt númer, skaltu hafa 
samband við símafyrirtækið þitt.
Upplýsingar um lykilorð má fá hjá 
aðgangsstaðaþjónustu, svo sem netþjónustuveitu 
eða þjónustuveitu.
Forrit svarar ekki
Spurning: Hvernig loka ég forriti sem svarar ekki (er frosið)?
Svar:
Haltu inni
takkanum til að opna skiptiglugga
forrita. Flettu svo að forritinu og ýttu á
.
Bluetooth-tengingar
Spurning: Af hverju finn ég ekki tæki vinar míns?
Svar:
Kannaðu hvort kveikt sé á Bluetooth 
í báðum tækjunum.
Gakktu úr skugga um að fjarlægðin á milli tækjanna 
tveggja sé ekki meiri en 10 metrar (33 fet) og að ekki 
séu veggir eða aðrar hindranir á milli þeirra.
Gakktu úr skugga um að hitt tækið sé stillt á sýnilegt.
Gakktu úr skugga um að tækin séu samhæf.
Spurning: Af hverju get ég ekki slökkt á Bluetooth-tengingu?
Svar:
Ef annað tæki er tengt við tækið þitt getur þú 
annaðhvort slitið tengingunni í hinu tækinu eða 
slökkt á Bluetooth-tengingunni í tækinu þínu. 
Veldu
Verkfæri
>
Bluetooth
>
Slökkt
.
Vafraþjónusta
Spurning: Hvað geri ég ef þessi skilaboð birtast:
Engir aðgangsstaðir skilgreindir. Skilgreina nú?
Svar:
Tilgreindu réttar stillingar fyrir vafrann. Þú færð 
leiðbeiningar hjá þjónustuveitunni þinni. 
Myndavél
Spurning: Af hverju virðast myndir vera óskýrar?
Svar:
Fjarlægðu plasthlífina sem er yfir skjánum og 
myndavélarlinsunni. Gakktu úr skugga um að 
hlífðargler myndavélarlinsunnar sé hreint.
Spurning: Hvers vegna birtast villuboðin „Application already
in use“ þegar ég reyni að kveikja á myndavélinni?
Svar:
Forritið fyrir myndavélina gæti verið opið 
í bakgrunni. Til að athuga hvort myndavélin sé virk 
eða ekki skaltu halda 
inni. Skiptigluggi
forritsins opnast. Ef myndavélin er virk skaltu
 
Úrræðaleit: Spurningar & Svör
124
skruna að henni á listanum og ýta á skruntakkann. 
Til að slökkva á myndavélarforritinu skaltu ýta á 
.
Skjár
Spurning: Hvers vegna sjást daufir, upplitaðir eða skærir
punktar á skjánum þegar ég kveiki á tækinu?
Svar:
Þetta er einkennandi fyrir þessa skjágerð. Á sumum 
skjám geta verið dílar eða punktar sem lýsa 
annaðhvort stöðugt eða alls ekki. Hér er ekki um 
að ræða galla heldur eðlilegan hlut.
Notkunarskrá
Spurning: Af hverju er notkunarskráin tóm?
Svar:
Ef til vill hefurðu valið síu og engin samskipti hafa 
verið skráð sem hæfa henni. Hægt er að skoða öll 
samskipti með því að velja 
Forrit
>
Notk.skrá
>
Valkostir
>
Sía
>
Öll samskipti
.
Notkunarupplýsingunun er einnig eytt ef skipt 
er um (U)SIM-kort.
Lítið minni
Spurning: Hvað get ég gert ef minnið í tækinu er lítið?
Svar:
Hægt er að eyða eftirfarandi hlutum reglulega 
til að komast hjá því að minnið fyllist:
•
Skilaboðum úr
Innhólf
,
Uppköst
og
Sendir hlutir
í
Skilaboð
•
Móttekinn tölvupóst úr minni tækisins
•
Vistuðum vefsíðum
•
Myndum og hreyfimyndum í
Gallerí
Til að eyða tengiliðaupplýsingum, dagbókaratriðum, teljurum, 
kostnaðarteljurum, leikjastigum, eða hvaða gögnum öðrum 
sem er, skaltu opna viðkomandi forrit til að fjarlægja gögnin. 
Ef verið er að eyða mörgum atriðum og ein eftirfarandi 
athugasemda birtist: 
Ekki nægilegt minni fyrir aðgerð.
Eyða þarf einhv. gögnum fyrst.
eða
Lítið minni eftir.
Eyða þarf einhverjum gögnum.
, skaltu reyna að eyða
gögnum, einum hlut í einu (byrja á þeim minnsta).
Uppsetningarskrár (.sis) forritanna sem eru vistuð í minni 
tækisins verða áfram í minninu eftir að forritið hefur verið 
sett upp á samhæfu miniSD-korti. Fjarlægðu slíkar 
uppsetningaskrár úr minni tækisins. Til að gera það skaltu taka 
afrit af uppsetningarskránum á samhæfa tölvu með því að 
nota Nokia PC Suite og fjarlægja síðan uppsetningarskrána úr 
minni tækisins með því að nota 
Skráarstjórn
(sjá „Skráastjóri”
á bls. 15).
Spurning: Hvernig get ég vistað gögnin mín annars staðar?
Svar:
Vistaðu gögnin með einni af eftirfarandi aðferðum:
•
Notaðu Nokia PC Suite til að búa til öryggisafrit af öllum 
gögnum og setja það á samhæfa tölvu.
•
Sendu myndir á tölvupóstfangið þitt og vistaðu 
svo myndirnar í tölvunni.
•
Sendu gögn með Bluetooth-tengingu í samhæft tæki.
•
Vistaðu gögn á samhæfu minniskorti.
Skilaboð
Spurning: Af hverju get ég ekki valið tengilið?
 
Úrræðaleit: Spurningar & Svör
125
Svar:
Tengiliðaspjaldið inniheldur hvorki símanúmer 
né tölvupóstfang. Bættu upplýsingunum sem 
vantar á tengiliðaspjaldið í 
Tengiliðir
.
Margmiðlunarskilaboð
Spurning: Hvað á ég að gera þegar tækið getur ekki tekið
við margmiðlunarskilaboðum vegna þess að minnið 
er fullt?
Svar:
Í villuboðunum koma fram upplýsingar um hvað 
þarf að losa um mikið minni: 
Ekki hægt að sækja
skilaboð. Eyða verður einhverjum gögnum 
fyrst.
Til að sjá hvers konar gögn eru vistuð og
hversu mikið minni mismunandi gögn nota skaltu 
velja 
Skr.stj.
>
Valkostir
>
Minnisupplýsingar
.
Spurning: Tilkynningin
Sæki skilaboð
birtist í stutta stund.
Hvað er að?
Svar:
Tækið er að reyna að sækja margmiðlunarskilaboð 
frá skilaboðastöðinni.
Gakktu úr skugga um að stillingar fyrir 
margmiðlunarskilaboð séu rétt valdar og að 
símanúmer og aðrar upplýsingar séu réttar. 
Veldu
Skilaboð
>
Valkostir
>
Stillingar
>
Margmiðlunarboð
.
Spurning: Hvernig get ég lokað gagnatengingu þegar tækið
kemur henni alltaf á aftur?
Svar:
Til að koma í veg fyrir að tækið komi á 
gagnatengingu skaltu velja 
Skilaboð
>
Valkostir
>
Stillingar
>
Margmiðlunarboð
>
Móttaka
margmiðl.
>
Óvirk
. Eftir þessa breytingu kemur
tækið aldrei á tengingu við farsímakerfið vegna 
margmiðlunarskilaboða. 
Tenging við tölvu
Spurning: Af hverju á ég í vandræðum með að tengja tækið
við tölvuna mína?
Svar:
Gakktu úr skugga um að Nokia PC Suite sé uppsett 
og í gangi á tölvunni þinni. Nánari upplýsingar er 
að finna í notendahandbókinni fyrir Nokia PC Suite 
á geisladiskinum. Til að sjá upplýsingar um notkun 
PC Suite skaltu skoða hjálparvalmyndina í Nokia PC 
Suite eða þjónustusíðurnar á www.nokia.com.
Spurning: Get ég notað tækið sem faxmótald með samhæfri
tölvu?
Svar:
Þú getur ekki notað tækið sem faxmótald. Með því 
að nota símtalsflutning (sérþjónusta) getur þú hins 
vegar beint mótteknum faxsendingum í annað 
símanúmer.