 
Öryggisatriði
Lesið þessar einföldu leiðbeiningar. Sé þeim ekki fylgt getur 
það verið hættulegt eða varðað við lög. Lesa skal alla 
notendahandbókina til að fá nánari upplýsingar.
ÖRYGGI ÞEGAR KVEIKT ER Á TÆKINU Ekki
má kveikja á tækinu þar sem notkun þráðlausra 
síma er bönnuð eða þar sem hún kann að valda 
truflunum eða hættu.
UMFERÐARÖRYGGI GENGUR FYRIR Fara skal
að öllum staðbundnum lögum. Ætíð skal hafa 
hendur frjálsar til að stýra ökutækinu við 
akstur. Umferðaröryggi skal ganga fyrir í akstri.
TRUFLUN Öll þráðlaus tæki geta verið næm
fyrir truflunum, sem getur haft áhrif 
á virkni þeirra.
SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM 
Á SJÚKRASTOFNUNUM Virða skal allar 
takmarkanir. Slökkva skal á tækinu nálægt 
lækningabúnaði.
HAFA SKAL SLÖKKT Á SÍMANUM 
Í FLUGVÉLUM Virða skal allar takmarkanir. 
Þráðlaus tæki geta valdið truflunum 
í flugvélum.
SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM ÁÐUR EN 
ELDSNEYTI ER TEKIÐ Ekki nota tækið nærri 
eldsneytisdælu. Notist ekki í námunda 
við eldsneyti eða sterk efni.
SLÖKKVA SKAL Á SÍMANUM ÞAR SEM 
VERIÐ ER AÐ SPRENGJA Virða skal allar 
takmarkanir. Ekki nota tækið þar sem verið 
er að sprengja. 
NOTIST AF SKYNSEMI Notist aðeins í þeim
stöðum sem lýst er í leiðbeiningum með 
vörunni. Forðast skal óþarfa snertingu 
við loftnetið.
VIÐURKENND ÞJÓNUSTA Aðeins viðurkennt
starfsfólk má setja upp eða gera við þessa vöru.
AUKAHLUTIR OG RAFHLÖÐUR Aðeins má
nota samþykkta aukahluti og rafhlöður. 
Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.
VATNSHELDNI Tækið er ekki vatnshelt.
Halda skal því þurru.
 
8
ÖRYGGISAFRIT Muna skal að taka öryggisafrit
eða halda skrá yfir allar mikilvægar 
upplýsingar. 
TENGING VIÐ ÖNNUR TÆKI Þegar tækið er
tengt öðru tæki skal lesa notendahandbók með 
því vandlega, einkum upplýsingar um öryggi. 
Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.
NEYÐARSÍMTÖL Tryggja skal að kveikt sé
á símaaðgerðum tækisins og þær séu virkar. 
Ýta skal á endatakkann eins oft og þarf til að 
hreinsa skjáinn og fara aftur í biðstöðu. Sláðu 
inn neyðarnúmerið og ýttu á hringitakkann. 
Gefa skal upp staðarákvörðun. Ekki má slíta 
símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.
Um tækið
Þráðlausa tækið sem lýst er í þessari handbók er samþykkt 
til notkunar á EGSM 850/900/1800/1900 og UMTS 2100 
símkerfunum. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar 
um símkerfi.
Tækið styður internettengingar og aðrar tengiaðferðir. 
Líkt og með tölvur geta vírusar, skaðleg skilaboð og forrit, 
ásamt öðru skaðlegu efni haft áhrif á tækið. Gæta skal 
varúðar og aðeins opna skilaboð, samþykkja tengibeiðnir, 
hlaða niður efni og samþykkja uppsetningar frá traustum 
aðilum. Til að auka öryggi tækisins er ráðlegt að setja upp, 
nota og uppfæra reglubundið bæði vírusvarnarbúnað, 
eldvegg og annan slíkan hugbúnað í tækinu og 
tengdum tölvum.
Við notkun þessa tækis skal hlíta öllum lögum og virða 
staðbundnar venjur, einkalíf og lögmæt réttindi annarra, 
þ.m.t. höfundarrétt. 
Höfundarréttarvarnir geta komið í veg fyrir að hægt 
sé að afrita, breyta, flytja eða framsenda myndir, tónlist 
(þ.m.t. hringitóna) og annað efni.
Viðvörun: Við notkun allra aðgerða í þessu tæki,
annarra en vekjara, þarf að vera kveikt á tækinu. Ekki 
skal kveikja á tækinu þegar notkun þráðlausra tækja 
getur valdið truflun eða hættu.
Skrifstofuforritið styður helstu valkosti Microsoft Word, 
PowerPoint og Excel (Microsoft Office 2000, XP og 2003). 
Ekki er hægt að skoða eða breyta öllum skráargerðum.
Tækið kann að innihalda bókamerki eða tengla sem veita 
aðgang að síðum þriðju aðila. Einnig er hægt að fá aðgang 
að síðum annarra þriðju aðila í tækinu. Síður þriðju aðila 
tengjast ekki Nokia og Nokia mælir hvorki með né tekur 
ábyrgð á þeim. Ef valið er að fara inn á slíkar síður skal 
beita öryggisráðstöfunum.
 
9
Sérþjónusta
Til að hægt sé að nota símann verður áskrift að 
þjónustuveitu fyrir þráðlausa síma að vera fyrir hendi. 
Margir af valkostum símans flokkast undir sérþjónustu. 
Ekki er hægt að nota þessa valkosti í öllum símkerfum. 
Í öðrum símkerfum kann jafnframt að vera farið fram 
á sérstaka skráningu fyrir þessari þjónustu. Leiðbeiningar 
ásamt upplýsingum um gjald fyrir þjónustuna fást hjá 
þjónustuveitu. Sum símkerfi kunna að hafa takmarkanir 
sem hafa áhrif á hvernig hægt er að nota sérþjónustu. Sum 
símkerfi styðja t.d. ekki alla séríslenska bókstafi og þjónustu.
Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að tilteknar 
aðgerðir væru hafðar óvirkar eða ekki gerðar virkar 
í tækinu. Ef svo er birtast þær ekki í valmynd tækisins. 
Tækið kann einnig að hafa verið sérstillt, t.d. kann heitum, 
röð og táknum valmynda að hafa verið breytt. 
Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
Þetta tæki styður WAP 2.0 samskiptareglur (HTTP og SSL) 
sem keyra á TCP/IP samskiptareglum. Sumar aðgerðir þessa 
tækis, svo sem MMS, netvafur, niðurhal tölvupósts og efnis 
með vafranum eða um MMS krefjast símkerfisstuðnings 
við þessa tækni.
Upplýsingar um framboð og notkun SIM-korta má fá hjá 
seljanda SIM-kortsins. Þetta getur verið þjónustuveitan 
eða annar söluaðili.
Aukahlutir, rafhlöður 
og hleðslutæki
Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður 
en rafhlaðan er fjarlægð.
Athuga ber tegundarnúmer hleðslutækja áður en þau eru 
notuð með þessu tæki. Þetta tæki er ætlað til notkunar 
þegar það er hlaðið orku frá DC-4, AC-3 eða AC-4 
hleðslutæki og frá AC-1, ACP-7, ACP-8, ACP-9, ACP-12, 
LCH-9 eða LCH-12 hleðslutæki þegar það er notað með 
CA-44 millistykki.
Rafhlaðan sem ætluð er til notkunar með þessu tæki 
er BP-6M.
Viðvörun: Aðeins skal nota rafhlöður, hleðslutæki
og aukahluti sem Nokia hefur samþykkt til nota með 
þessari tilteknu tegund. Ef notaðar eru aðrar gerðir gæti 
öll ábyrgð og samþykki fallið niður og slíkri notkun 
getur fylgt hætta.
Seljandi símans veitir upplýsingar um fáanlega aukahluti 
sem samþykktir eru til notkunar. Þegar aukahlutur 
er tekinn úr sambandi skal taka í klóna, ekki leiðsluna.